Súkkulaðikakan
150g dökkt súkkulaði
150g kókosolía/smjör
- brætt saman í vatnsbaði
250g kókóspálmasykur
3 egg
1 tsk vanilla
100g spelt eða glútenlaus mjölblanda
1 dl valhnetur, smátt saxaðar
Aðferð: Byrjið á að bræða súkkulaðið og kókosolíuna/smjörið yfir vatnsbaði og látið aðeins kólna.
Hrærið eggjunum útí ásamt hrásykrinum/kókospálmasykrinum vanillunni og speltinu og bætið svo valhnetunum út í.
Setjið bökunarpappír í form og hellið deiginu útí.
Bakað í 22 mín við 165°C.
Hellið saltri karamellu yfir og berið fram.
Sölt karamella
2 msk möndlusmjör
1/3 dl kókosolía
2/3 dl sæta, t.d. hlynsíróp
1 tsk sjávarsalt
- allt sett í blandara og blandað vel saman