Það er fátt leiðinlegra en að fá gesti og eiga ekkert með kaffinu.
Þessi uppskrift er fáránlega einföld og tryggir að þú átt alltaf kruðerí með kaffinu.
Sælgætishnetur
Hráefni:
3 msk sykur
1 1/2 tsk salt
1 1/2 tsk kanill
1/2 tsk cayenne-piparduft
1/2 tsk negull
1 1/2 msk smjör
3 msk koníak
1 msk vanilludropar
1 1/2 msk púðursykur
3 bollar pekanhnetur
Aðferð:
Hrærið sykri, salti, kanil, pipar og negul saman í skál.
Setjið smjör, koníak, vanilludropa og púðursykur í pönnu og hitið yfir meðalhita.
Látið sjóða og bætið svo hnetunum saman við og eldið í um 4 mínútur.
Stráið kanilblöndunni yfir hneturnar og hrærið vel.
Eldið í um 6 mínútur til viðbótar eða þar til sykurinn hefur bráðnað.
Setjið á bökunarpappír og leyfið hnetunum að kólna.