Múslí
Þetta múslí er mjög einfalt og sniðugt að nota í kökur.
8 dl hafrar
2 dl möndlur
2 dl pekanhnetur
2 dl sólkjarnafræ
2 dl sesamfræ
2 dl eplasafi
1 dl kasjúhnetur
1 dl kókosolía
1 – 2 msk hunang
1 dl kókosmjöl
smá salt
1 dl rúsínur
1 dl chia fræ
100 g smjör
nokkrar döðlur, smátt skornar
Fylling:
1 dós grískt jógúrt
1 msk hunang
2 ástaraldin
Ferskir ávextir og ber t.d. kíví, jarðarber, bláber, hindber og brómber
Aðferð: Hitið ofninn í 180°C. Blandið saman haframjöli, pekanhnetum, möndlum, sólkjarnafræjum og sesamfræjum.
Hellið eplasafa og fljótandi kókosólíu út í og blandið öllu vel saman.
Klæðið bökunarplötu með bökunarpappír og dreifið múslíinu á plötuna.
Bakið í ca. 30 mínútur eða lengur.
Fylgist vel með og hrærið nokkrum sinnum í blöndunni á meðan bökunartíma stendur.
Kælið vel áður en þið berið fram.
Bætið t.d. þurrkuðum berjum eða kókosflögum við múslíið þegar það kemur út úr ofninum.
Bræðið 100 g af smjöri og hrærið saman við múslíið.
Hellið blöndunni í eldfast bökumót og bakið við 180°C í 10 mínútur.
Kælið í smá stund áður en þið setjið fyllinguna á botninn.
Fylling: Hrærið grísku jógúrti, 2 matskeið af hunangi og kjötinu úr tveimur ástaraldin ávöxtum.
Smyrjið fyllingunni ofan á botninn.
Skerið niður ferska ávexti og ber og skreytið kökuna að vild.
Sáldrið gjarnan smá kókosmjöli yfir í lokin og berið strax fram.