Ef þú ert nammigrís skaltu lesa áfram. Hér er nefnilega frábært ráð fyrir fólk sem elskar sykur. Löngun í sætindi getur verið fíkn en veistu að helsta ástæða fyrir sykurlöngun er streita? Sveppamyndun í líkamanum er algeng í kjölfar mikillar sykurneyslu þar sem líkaminn framleiðir slím sem er fullkominn grunnur fyrir sveppi og bakteríur sem margfalda sig á mettíma. Það þýðir að í líkama þínum eða í þörmunum öllu heldur búa sníkjudýr (bakteríur) sem búa til fitusöfnun og valda vanlíðan og ýmsum kvillum. Hér viljum við benda þér á einfalda uppskrift sem samsanstendur af tveimur hráefnum sem saman hjálpa þér að útrýma fyrrnefndum sníkjudýrum sem þrífast í líkama þínum og þá sér í lagi ef þú leggur það í vana þinn að borða mikinn sykur. Um er að ræða negul og hörfræ. Innihaldsefnin eru: 100 gr hörfræ 10 gr af þurrkaður negull Aðferð: Malaðu þessi tvö efni í kvörn þar til þau verða að dufti. Notkun: Þú skalt blanda duftinu við vatn og drekka á fastandi maga á morgnana. Þá er líka gott að setja duftblönduna út á morgunmatinn. Mælt er með því að þú takir 2 matskeiðar inn á hverjum morgni í þrjá daga. Eftir 3 daga skaltu gera þriggja daga hlé og byrja svo upp á nýtt. Þú ættir að venja þig á að neyta blöndunnar í um það bil mánuð í því skyni að halda sníkjudýrunum frá en þú skalt ekki hika við að endurtaka þessa hreinsun nokkrum sinnum á ári. |
0 Comments
Leave a Reply. |
AuthorWrite something about yourself. No need to be fancy, just an overview. Archives
January 2016
Categories |