Nú er veturinn að færast yfir landið og þá þarf maður að hugsa extra mikið um að innbyrða nóg af C-vítamíni til að halda sér ferskum.
Þessi safi er stútfullur af C-vítamíni og er rosalega góður fyrir húðina.
Ljómandi safi
Hráefni:
2 appelsínur, án hýðis
1 biti engifer, á stærð við þumal, án hýðis
1 meðalstór gulrót
fræ úr 1/2 granatepli
Aðferð:
Setjið allt í djúsvél og djúsið eins og enginn sé morgundagurinn.