Hollar haframjölsbollur
2 dl haframjöl
1 ½ dl sólkjarnafræ
1 ½ dl hörfræ
6 dl vatn
5 dl súrmjólk
1 (11.8 g) pakki þurrger
1 ½ tsk gróft salt
2 msk hunang (eða agavesýróp)
½ dl olía
2 egg
4 dl heilhveiti (meira eftir þörfum)
1/2 dl hveitiklíð
Setjið haframjöl, fræinog vatn saman í pott og sjóðið í eina mínútu. Takið af hitanum og bætið mjólk, salti og hunangi, eggi og olíu saman við. Þegar blandan er orðin fingurvolg (37°c) bætið þá gerinu saman við. Hrærið því næst hveiti saman við og hnoðið vel.
Látið deigið hefast á volgum stað í amk 1 klukkustund. Hnoðið og mótið um 40 bollur. Setjið þær á ofnplötu með smjörpappír og látið hefast í 15-20 mínútur.
Penslið bollurnar með léttpískuðu eggi og stráið fræjum yfir. Setjið í 225°c heitan ofn og bakið í um 15 mínútur eða þar til bollurnar eru orðnar gylltar.